Opnun tilboða í útboði á mönnun og viðhaldi á dráttarbátnum Vetti

Í dag, þann 10. nóvember 2026, fór fram opnun tilboða í útboði á mönnun og viðhaldi á dráttarbátnum Vetti fyrir árin 2027-2029.  Eftirfarandi tilboð bárust:

 

Nafn bjóðanda                                       Heildartilboðsverð með vsk (ISK)
Fortuna Skipaþjónusta ehf             200.880.000

 

Opnunarskýrsla felur ekki í sér niðurstöðu útboðs. Í opnunarskýrslu eru einungis birt nöfn bjóðenda en endanlegt val getur ráðist af fleiri valforsendum skv. útboðsgögnum. Framsetning opnunarskýrslu er með fyrirvara um hugsanlegar villur og að ekki er búið að meta gildi tilboða. Komi í ljós að upplýsingar í opnunarskýrslu eru ekki réttar miðað við leiðbeiningar, verður leiðrétt opnunarskýrsla birt eins fljótt og unnt er.