Um okkur

Fjarðabyggðarhafnir eru næststærsta höfn landsins, með tæplega þriðjung af öllum vöruútflutningi landsmanna og sú stærsta ef eingöngu er litið til útflutnings ál- og fiskafurða. Hafnarsjóður Fjarðabyggðar stendur straum af öllum rekstri hafna.

Hafnarstjórn Fjarðabyggðar hefur umsjón með rekstri og uppbyggingu á athafnasvæðum hafna. Leiðarljós hafnarstjórnar er að viðskiptavinum Fjarðabyggðarhafna sé veit framúrskarandi þjónusta á öllum sviðum hafnarstarfsemi. Hlutverk Fjarðabyggðarhafna felst í þjónustu við fyrirtæki í hafntengdri starfsemi, samskipti við skip og umboðsaðila þeirra, framkvæmd hafnsögu, þjónustu dráttarbáts, vigtun sjávarfangs og öðru sem tilheyrir starfsemi hafna.

Fjarðabyggðarhafnir mynda sjálfstæða rekstrareiningu innan stofnanakerfis sveitarfélagsins. Starfsstöðvar hafna eru opnar kl. 8:00 – 16:00 virka daga nema föstudaga þá er opið 08:00 - 14:30, en auk þes eru starfsmenn á bakvöktum sem sinna útköllum utan vinnutímans.

Stjórnandi hafna og hafnarstjóri fara með daglega stjórn hafnarinnar í umboði hafnarstjórnar og annast m.a. umsjón með fjármálum, rekstri, viðhaldi og nýbyggingum hafnarinnar og annast samskipti við hagsmunaaðila.