Vakin er athygli á því að um áramót taka gildi nýjar reglur sem varða umgengni og skráningu á gámasvæðum og uppsátrum í eigu Fjarðabyggðarhafna:
Gámaplön á vegum Fjarðabyggðarhafna eru einungis ætluð til geymslu á lokuðum gámum. Óheimilt er að geyma hluti utan við eða ofan á gámum. Hlutir sem geymdir eru utan gáma verða fjarlægðir á kostnað eiganda. Sótt er um svæði á gámaplani hjá hafnarvörðum.
Geymsla smábáta á uppsátrum er gjaldfrjáls en stefnt er að því að gjaldtaka muni hefjast árið 2027.
Uppsátur báta á vegum Fjarðabyggðarhafna eru einungis ætluð fyrir geymslu á smábátum. Heimilt er að geyma þar tómar bátakerrur á meðan bátar eru á sjó eða í smábátahöfn. Óheimilt er að geyma annað á svæðunum. Sótt er um svæði á uppsátri hjá hafnarvörðum.
Þeim sem eiga gám á gámasvæðum eða bátakerrur á uppsátrum er bent á að hafa samband við hafnarverði viðeigandi hafnar til að fá það skráð. Frestur er gefinn til 31. janúar næstkomandi til að fjarlægja þá hluti af svæðunum sem ekki falla undir reglurnar. Að þeim tíma liðnum verða þeir hlutir sem eftir verða óskráðir fjarlægðir á kostnað eigenda.