Í dag, fimmtudaginn 30.júlí, tókum við á móti fyrsta skemmtiferðaskipi sumarsins þegar Insignia kom til hafnar á Eskifirði. Þetta er fyrsta koma skipsins til hafnar í Fjarðabyggðarhöfnum og að því tilefni fór hafnarstjóri ásamt stjórnanda hafna og fulltrúa hafnarstjórnar um borð, hittu fulltrúa útgerðarinnar og fengu skoðunarferð um skipið. Um er að ræða stærsta skipið af þeim fjórum sem koma til hafnar í Fjarðabyggðarhöfnum í sumar, það er 180 m langt og um borð er 631 farþegi og 396 manna áhöfn. Skipið er á hringferð um Ísland með viðkomu í Færeyjum, þaðan sem skipið kom til Eskifjarðar.
Næsta skemmtiferðaskip, Deutschland, er væntanlegt á Eskifjörð á laugardaginn, 1.ágúst.